Terms of service

Viðskiptaskilmálar

Gildir fyrir: koracomfort.is
Uppfært: 2. apríl 2026

1.Gildissvið
Skilmálar þessir gilda um öll kaup sem fara fram á vefsíðunni koracomfort.is.

2. Vörur og verð
Kora Comfort selur fatnað í gegnum vefverslun. Allar upplýsingar um vörur eru birtar með fyrirvara um villur í lýsingum, myndum og verði.

Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt nema annað sé tekið fram.

3. Greiðslur
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt.

Seljandi áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla pöntun, til dæmis ef:
- rangar verðupplýsingar birtast
- tæknivilla kemur upp
- vara er ekki til á lager
- grunur leikur á um svik

4. Afhending
Pantanir eru sendar með Dropp innan Íslands.

Áætlaður afhendingartími er 2–5 virkir dagar frá staðfestingu pöntunar. Seinkanir geta komið upp vegna aðstæðna sem eru utan okkar stjórnunar.

5. Skil og endurgreiðslur
Viðskiptavinur hefur rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru, án þess að þurfa að tilgreina ástæðu.

Skilyrði fyrir skilum:
- Vara skal vera ónotuð
- Vara skal vera í upprunalegu ástandi og umbúðum

Kora Comfort ber kostnað af skilum.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup, innan 5–10 virkra daga frá móttöku skilaðrar vöru.

6. Undantekningar frá skilum
Ekki er heimilt að skila vörum sem:
- hafa verið notaðar
- eru sérpantanir (ef við á)

7. Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng skal hafa samband án tafar á info@koracomfort.is. Við munum bæta úr því með nýrri vöru eða endurgreiðslu eftir atvikum.

8. Ábyrgð
Seljandi ber ábyrgð á vörum í samræmi við íslensk lög um neytendakaup.

9. Persónuvernd
Meðferð persónuupplýsinga er í samræmi við friðhelgisstefnu vefsíðunnar.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga er að finna í friðhelgisstefnu.

10. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög.
Komi upp ágreiningur skal reka mál fyrir íslenskum dómstólum.

11. Upplýsingar um seljanda
Nafn: Lilja María Ívarsdóttir
Kennitala: 060684-2279
Heimilisfang: Pálsbúð 17(ekki vörumóttaka)
Netfang: info@koracomfort.is